Frekar sorgleg orðin þessi blessaða síða. Núna virðist ég bara geta bloggað á mánaðarfresti og finnst ég varla hafa neitt að segja þrátt fyrir alla þessa daga sem líða á milli. Veikindi og aftur veikindi hafa einkennt heimilið síðasta mánuð

Heiðar var heima veikur í viku í lok mars og svo tók ég svona hálf tussuleg veikindi í 2 daga og fyrir viku síðan fór ég heim úr vinnunni, komin með 39 stiga hita og ég hef ekki verið svona lasin í mörg mörg ár

Á sunnudagsmorgninum vaknaði Heiðar svo með 39 stiga hita og við erum búin að vera heima saman alla vikuna veik

úffffff hvað það er búið að reyna á. Heiðar er búinn að vera þvílíkt vælinn og leið frekar illa, vildi bara horfa frá því hann vaknaði (sem nota bene var kl 6, tvo morgna) og þangaði til hann fór að sofa.. Þar fauk útum gluggan planið mitt um að leyfa honum bara að horfa á sjónvarp um helgar

Á fimmtudaginn fórum við svo með hann til læknis og fengum pensilínið (enn eitt planið út um gluggan, að barnið fengi ekki pensilín með stuttu millibili) Hann er allur að hressast og ég samhliða því

Shit hvað getur verið erfitt að vera andlegt skrímsli eftir vikudvöl heima hjá sér og gerði ég þau mistök að horfa á p.s i love you og ég grenjaði úr mér augun og aðeins á eftir líka hehehehehe ég er svo mikill vælukjói.. Má ekki við neinu..
Annars er helst að frétta að ég er komin með nýja vinnu

ætla sem sagt að vinna í sumar á hæfingarstöð fyrir fatlaða sem er í skógarlundi. Þar verð ég annað hvort með unga stráka að fara með þeim í bæjinn og í sund og svona eða með eldra fólki að föndra og dúllast

Hlakka ekkert smá til að prófa að vinna með fötluðum, held að það sé reynsla sem allir hafi gott af.
Sveinar er byrjaðu í office one og er að fíla sig þar
Ummmmm framtíðarplönin eru enn óljós en ég ákvað að sækja um diplómanám í náms- og starfsráðgjöf í HÍ í fjarnámi. Ef ég kemst inn þá byrja ég í því í haust og það er 2 ár
Svo er bara allt frekar óljóst með haustið, margt á planinu en óvíst hvað við gerum.
Í kvöld er ég að fara í 30 afmæli til Daggar, hlakka rosa til að hitta allar skemmtilegu vinkonur mínar

missti af afmæli hjá Hauk og Heiðu Rún í gærkvöldi, frétti að það hefði verið rosa fjör. Við gáfum Hauk crocks skó, hehehehe ógeð fyndnar, en okkur fannst eitthvað lame að kaupa gjafabréf þannig við keyptum bleika crocks sem hann þarf þá bara að skila

ohhhhhhhh var ég búin að segja ykkar hvað mig langar á James Blunt????? óska hér með eftir boði þangað, alla vega á ég ekki 15 þús fyrir miða
Hei Hlín benti mér á geðveikt sniðuga síðu þar sem fólk er að koma með reynslusögur af því hvernig er endalaust verið að okra á okkur og sem upplýstir þjóðfélagsþegnar eigum að forðast þessa staði sem eru beinlínis að hafa okkur að fíflum, hér er linkurinn
http://this.is/drgunni/okur.html tékkið á þessu
Jæja, ætla að halda áfram að gefa opnunartímann í vínbúðinni og eiga við skemmtilega viðskiptavini
kiss kiss
HB